17.4.2009 | 14:48
Bankahrun = Starfsmannahrun?
Nú hef ég verið viðskiptavinur Byrs sparisjóðs
í mörg ár, þangað til nýlega að ég fór alvarlega
að hugsa minn gang, eftir ítrekuð leiðindi.
Það virðist ekki skipta máli hvert sé litið,
alltaf kemur maður að annaðhvort tómum dyrum (andlega)
eða með mjög lélegu gerefti (verklega),
(þetta umrædda útibú mitt þarf ekki að koma
hér undir nafni, enda er ég ekki að klaga neinn)
.
Á 3 mánuðum hefur þeim tekist að ógilda debetkortið
mitt 3x og panta nýtt, án frekari útskýringa þegar ég leitaði svara,
svörin voru "jahhh nú veit ég ekki", ég þarf s.s að standa í því
að láta virkja gamla kortið mitt aftur og ógilda það nýja
því starfmennirnir vita ekki af hverju þeir ógilda kortið mitt trekk í trekk.
Síðasta hálmstráið var líklegast um daginn þegar ég ætlaði
að gera móður minni greiða og taka út fyrir hana þar sem
hún er að vinna þannig vinnu að hún kemst sjaldan í banka
vegna sinnar vinnu, ég sem prókúruhafi á hennar reikning
mæti til að gera upp hennar reikninga og taka út pening,
tilkynnir gjaldkeri mér það að ég sé ekki lengur með þessa
prókúru og þeir hafi líklegast bara týnt henni og ég og mamma
þyrftum að mæta sama og fylla út umsókn fyrir nýrri.
Ég bara spyr...er þetta vinnubrögðin sem maður á að venjast
hér eftir í bönkunum eða er einhver siðsamlegri í þessum efnum?
Klárt mál að Byr fær falleinkum frá mér
og ætti að hugsa sinn gang alvarlega
og sérstaklega hverslags "fólk" það telur
vera hæft hjá sér til starfa.
Bankalaus Örn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)